
Mynda og minningarkvöld
Staðsetning: Bæjarlind 14 2 hæð Kópavogi
Sýnd verður upptaka af Niðjamóti Pétur Sveinbjörnssonar og Kristjönu Friðbertsdóttur sem haldið var á Laugum í Súgandafirði árið 2007
Kæru Súgfirðingar,
Það er smá breyting frá áður auglýstu Mynda og minngarkveldi að við ætlum að hafa þann 16 október n.k. sem er laugardagur sýningu á upptöku þeirra feðga Ævars Ástþórssonar og Ástþórs Harðarsonar af niðjamótinu sem haldið var árið 2007 á Laugum í Súgandafirði. Mynd er 108 mínútur að lengd og það verður smá hlé eftir 45 mín. Veitingar verða seldar gegn vægu verði. Aðgangseyrir 600 kr og eins verður hægt að horfa á myndina í gegnum fjarfundabúnað. Nákvæm staðsetning liggur ekki fyrir en sem komið er.
Bestu kveðjur,
Stjórnin
