Súgfirðingasetrið er á efri hæð að Aðalgötu 18. Það er íbúð Súgfirðingafélagsins sem er leigð út til félagsmanna. Öðrum stendur einnig til boða að spyrjast fyrir um leigu ef íbúðin er laus.
Íbúðin var gjöf til Súgfirðingafélagsins 8. nóvember 2003 frá hjónunum Kristínu Gissurardóttur og Halldóri Bernódússyni. Hún er þriggja herbergja með stofu, rúmum fyrir sex manns og nokkrum dýnum sem hægt er að grípa í.
Í íbúðinni er meðal annars
- Sængur og koddar fyrir 10 manns.
- Borðbúnaður fyrir 8 manns.
- Kaffivél fyrir uppáhellingu.
- Hrærivél og vöfflujárn.
- Vél til að útbúa sódavatn og ýmis áhöld í eldhúsi.
- Sjónvarp í stofu, tveir spilastokkar og bækur. Nettenging sjónvarps fer í gegnum farsíma. Leiðbeiningar fyrir Android ↗ · Leiðbeiningar fyrir iPhone ↗
- Þvottavél og þvottagrind í þvottahúsi. Helga og Sigmar á neðri hæðinni skaffa þvottaefni. Vegna ofnæmis er alls ekki mælt með að nota annað þvottaefni.
Gestabók er í setrinu og hvetjum við gesti til að segja okkur þar hvernig þeim líkaði dvölin og jafnvel skilja eftir skemmtilega sögu eða ljóð.
Takið með ykkur
- Kaffifilter, handsápu, salernispappír, handklæði og lín.
- Gæludýr eru almennt ekki leyfð í íbúðinni.
- Reykingar eru alfarið bannaðar í íbúðinni.
Áður en farið er úr íbúðinni
- Þrífa þarf vel eftir dvölina, tæma allt rusl, þrífa glugga, gluggakistur og annað gler og skúra bak við og undir rúm og húsgögn. Þrífa þarf bakarofn, eldavél, ísskáp og frysti eftir notkun. Ekki má taka ísskápinn úr sambandi. Þurrka þarf af sjónvarpi, taka það úr sambandi og loka öllum gluggum.
- Fara þarf varlega á svölunum og pallinum framan við íbúðina þar sem veggirnir eru ekki háir.
- Flokka þarf rusl sem sett er í ruslatunnurnar úti.
- Lykill að íbúðinni er í lyklakassa á veggnum við útidyrnar. Handhafi hverrar viku fær númer til að opna kassann. Auka lykill í neyð er hjá Ólöfu Birnu í bláa húsinu við hliðina á Aðalgötu 18.
- Hægt er að bóka þrif um leið og Setrið er bókað. Þrif kosta aukalega 15.000 kr.
Höfum í huga að í hreinni og vistlegri íbúð er gott að dvelja. Stöndum saman og gerum dvölina í íbúðinni sem ánægjulegasta með því að skilja mjög vel við hana eins og við viljum koma að henni.
GÖNGUM SNYRTILEGA UM!





