Fólkið · Fjörðurinn · Framtíðin
Skrá netfangGerast félagiSkrá inn

Súgandi / Um Súgfirðingafélagið

SÚGANDI · SUÐUREYRI

Um Súgfirðingafélagið

Súgfirðingafélagið tengir saman fólk sem á rætur, minningar og tengsl við Suðureyri og Súgandafjörð.

Um Súgfirðingafélagið

Nýi Súgandi-vefurinn verður heimili félagsins á netinu. Hér verður sagt frá tilgangi og starfsemi félagsins, sögu þess, stjórn og tengiliðum. Markmiðið er að varðveita tengslin við fjörðinn og skapa vettvang fyrir samfélagið, hvort sem fólk býr á Suðureyri eða ber staðinn með sér annars staðar.

SÚGFIRÐINGAFÉLAGIÐ

Ræturnar í Súgandafirði.
Fólkið nær og fjær.

Súgfirðingafélagið var stofnað 29. nóvember 1950. Stofnfélagar voru 115 talsins og fyrsti formaður var Guðmundur Jóhannesson. Félagið tengir saman fólk sem á rætur að rekja til Súgandafjarðar, viðheldur kynnum og tryggð við ræturnar og styður menningu og sögu Súgandafjarðar.

Gerast félagi →
1950Félagið stofnað
75+ár af félagsstarfi
Súgandiblað félagsins

SAGA FÉLAGSINS

Frá 1950 til dagsins í dag

Á stofnfundi 29. nóvember 1950 voru lög félagsins samþykkt og árgjaldið ákveðið 20 krónur. Frá stofnun hefur félagið verið vettvangur Súgfirðinga nær og fjær og haldið tengslunum við heimahagana lifandi með félagsstarfi, mynda- og minningarkvöldum, útgáfu og varðveislu sögu. Félagsmenn eru nú 360 talsins. Blaðið Súgandi kemur út tvisvar á ári, sumar og jól. Ritstjóri og hönnuður er Vildís Inga Salbergsdóttir og í ritnefnd eru Malin Brand, Áslaug Ólafsdóttir og Berglind Torfadóttir.

29. nóv. 1950Súgfirðingafélagið stofnað
1995Súgandi varðveitt á Tímarit.is
Í dagfélagið heldur tengslunum við fjörðinn lifandi

STJÓRN FÉLAGSINS

Stjórn kosin í febrúar 2026

Áslaug Ólafsdóttir | Formaður

Guðný Erla Guðnadóttir | Fjármálastjóri

Guðrún Sif Hannesardóttir | Meðstjórnandi

Berglind Torfadóttir | Meðstjórnandi

Ingólfur Geir Gissurarson | Meðstjórnandi

Elín Kristrún Halldórsdóttir | Meðstjórnandi

Margrét Alda Sigurvinsdóttir | Varamaður í stjórn

FÓLKIÐ

Formenn og heiðursfélagar

Sagan er sögð með nöfnum þeirra sem hafa leitt félagið og lagt því lið.

ÚTGÁFA FÉLAGSINS

Súgandi blaðið

Súgandi varðveitir fréttir, frásagnir, minningar og myndir úr samfélagi Súgfirðinga. Blaðasafnið er á sérstakri síðu þar sem tölublöðunum er raðað í 10 ára hillur.

Ritstjóri og hönnuður: Vildís Inga Salbergsdóttir
Ritnefnd: Malin Brand, Áslaug Ólafsdóttir og Berglind Torfadóttir.

Opna blaðasafnið →
SÚGANDIBlað Súgfirðingafélagsins

HEIÐMÖRK

Lundur Súgfirðingafélagsins

Súgfirðingafélagið er með landnemareit við Hraunslóð í Heiðmörk. Reiturinn er merktur J9 á landnemakortinu.

Ekki er hægt að aka beint frá Suðurlandsvegi um Hraunslóð þar sem vegurinn er lokaður við Silungapoll. Hægt er að leggja þar og ganga að reitnum, eða aka gegnum Heiðmörk og beygja inn á Hraunslóð frá Heiðmerkurvegi.

Nýtum þennan reit okkar!

FÉLAGIÐ

Lög Súgfirðingafélagsins

VERTU MEÐ

Berðu Súgandafjörð með þér?

Vertu hluti af samfélaginu og styðjið starf Súgfirðingafélagsins.

Árgjald4.400 kr.3.000 kr. fyrir 67 ára og eldriGerast félagi →