Fólkið · Fjörðurinn · Framtíðin
Skrá netfangGerast félagiSkrá inn

Súgandi / Sögur úr Súgandafirði

SÚGANDI · SUÐUREYRI

Sögur úr Súgandafirði

Frásagnir, minningar og sögur úr firðinum.

SÖGUR & MINNINGAR

Þorpsmyndun í Súgandafirði – Úr móum á Malir

Jörðin Suðureyri í Súgandafirði var að fornu mati 24 hundraða bújörð, væri hjáleigan Laugar talin með en hún var skilin frá heimajörðinni á fyrri hluta nítjándu aldar. Þaðan í frá taldist Suðureyri vera 20 hundruð.

Jörðin dregur nafn af eyrinni þar sem fyrrum var heimatúnið en rétt utan við hana var önnur eyri sem jafnan var nefnd Malir eða Suðureyrarmalir. Á Mölunum var öldum saman helsta verstöð Súgfirðinga og þar er elsti hluti þorpsins. Í þessari verstöð voru um langt árabil byggðar verbúðir, sem eingöngu voru nýttar vor og haust, og því ekki um raunverulega þorpsmyndun að ræða.

Suðureyri er í miðri sveit og þar var þingstaður Súgfirðinga um aldir. Suðureyri var talin “hrjóstrug jörð og snögglend” en þaðan var gott að sækja sjó og var það höfuðkostur jarðarinnar. Vetrarbeit fyrir sauðfé var hér líka “í skárra lagi”. Jörðinni fylgdi skógarpartur í landi Selárdals, norðan megin fjarðarins, og heitir þar Suðureyrarrjóður en á móti kom réttur Selárdalsmanna til skipauppsáturs og byggingu verbúða á Suðureyrarmölum.

Það sem hér hefur verið ritað kemur úr Vestfjarðariti I (Firðir og fólk 900-1900) Vestur-Ísafjarðarsýsla, sem tekið var saman af Kjartani Ólafssyni frá Laugum í Súgandafirði. Þar er fróðlegur kafli um bújörðina Suðureyri, en hér verður aftur á móti lítillega getið upphaf þorpsbyggðar á Suðureyrarmölum. Upplýsingar koma einnig úr sömu bók ásamt öðrum heimildum, fengnum víða að.

Á Suðureyrarmölum þar sem nú stendur elsti hluti þorpsins, var á fyrri hluta 17. aldar fjölmenn verstöð en um 1670 eða skömmu fyrr fækkaði mjög bátunum sem þaðan reru og um 1700 var sjór aðeins sóttur þaðan af heimamönnum og þeirra nágrönnum. Á átjándu öldinni fjölgaði á ný í þessari verstöð og á árunum kringum 1800 voru Suðureyrarmalir fjölsóttasta fiskiverið í vesturparti Ísafjarðarsýslu. Að svo hafi verið sjáum við á því að eigendur Suðureyrar höfðu þá mun hærri tekjur af vertollum en eigendur nokkurrar annarrar verstöðvar á þeim slóðum.

Greinagóðar upplýsingar koma fram í Vestfjarðaritinu, m.a. varðandi útgerð og útreiknaða vertolla víða um byggðir í V-Ísafjarðarsýslu og er það allt hin merkilegasta lýsing á fiskveiðum á Vestfjörðum á árunum í kringum 1700. Góð lýsing er á verbúðum, eigendum þeirra og ýmsu öðru sem merkilegt má telja. Það eina um búsetu á Mölunum á þessum árum segir að veturinn 1801-1802 hírðust hjónin Bjarni Jónsson og Ingibjörg Bjarnadóttir með börnin sín tvö, Eirík og Oddhildi í verbúð á Suðureyrarmölum og er það eina dæmið sem við þekkjum um vetursetu fólks í þessari gömlu veiðistöð, löngu áður en til varð vísir að þorpi.

Fyrstu íbúarnir sem tóku sér varanlega bólfestu á Mölunum settust þar að haustið 1889, nánar tiltekið þann 5. september. Þetta voru hjónin Marías Þorgilsson og Ástríður Halldórsdóttir, ásamt syni sínum Kristjáni Maríassyni, sem þá var 12 ára. Frá 1886 til 1889 áttu þau hjón heima í Lækjarkoti, hjáleigu ofan við túnið á Stað, og höfðust þar við í þurrabúð. Á Mölunum settist fjölskylda Maríasar að í verbúð sem hann keypti af Sigurði Jónssyni, fyrrum bónda á Gilsbrekku. Verbúðinni breytti Marías í varanlegan samanstað og nefndi Babýlon. Húsið tók seinna ýmsum breytingum en nafninu hélt það í 100 ár.

Í nær þrjú ár voru Marías og hans fólk einu íbúarnir á Suðureyrarmölum, en vorið 1892 fluttust þangað ásamt tveimur börnum sínum, hjónin Guðmundur Guðmundsson og Ingibjörg Friðbertsdóttir, sem búið höfðu á Laugum frá 1875. Guðmundur var sonur Guðmundar Guðmundssonar hreppstjóra, er fyrrum bjó á býlinu Suðureyri, og konu hans Kristínar Þorleifsdóttur. Þau Guðmundur og Ingibjörg byggðu árið 1892 lítið íbúðarhús upp úr Mjónabúð; það var með lágu porti og timburgöflum en veggirnir úr torfi og grjóti. Þetta hús fékk nafnið Róm eða Rómaborg. Grunnflötur þess var 12 eða 13 fermetrar. Í breyttri mynd hélt það velli fram yfir 1980 en var rifið 1983 eða 1984 og nokkru síðar fór Babýlon sömu leið.

Þórður Maríasson, Rómarstíg 2 ritaði byggingarsögu hússins Róm, (Rómarstíg 5), svohljóðandi:

“Róm var fyrsta húsið, með fullri búsetu, sem byggt var á Suðureyrarmölum, en svo var ytri eyrin ávallt nefnd. Áður höfðu verið byggðar þar verbúðir sem eingöngu voru nýttar vor og haust. Róm tel ég byggða árin 1892-1894 af Guðmundi Guðmundssyni sem áður bjó á Laugum, og þar með var komið fyrsta húsið sem búið var í allt árið.

Róm var íbúð Guðmundar og fjölskyldu hans meðan hann lifði og gekk síðan í arf til barna hans. Friðbert sonur Guðmundar giftist 1905 og byggði þá skúrbyggingu sunnanvert við gafl hússins og bjó þar til 1909 er hann byggir húsið að Eyrargötu 7. Friðbert Guðmundsson varð einn af máttarstólpum þessa þorps og kemur hann víða við sögu í uppbyggingu bygðarlagsins.

Róm er timburhús klætt sléttu járni utan, en á þaki var fyrst pappi, þar til þakjárn fór að flytjast. Klæðningur undir járni var 1 ¼ tommu slétt borð nótuð saman, breidd borða breytileg. Grindin er úr 3x3 og 4x4 tommu trjám. 10 cm rúm er stoppað til einangrunar, stoppið að mestu þurrkaður mosi, en það var algengt á þeim tíma, í húsum.

Utanmál á húsinu eru lengd 4 m, breidd 3,25 m, vegghæð 2,45 m. Að innan skiptist húsið svo þannig: neðri hæð, stofa, eldhús og gangur. Hæð undir loft 1,82 og var sú sama alsstaðar niðri. Stofan var þvert yfir húsið 2,45 m lengd, 3,1o á breidd. Eldhús 1,43 m lengd og 1,34 m breidd. Gangur 1,43 m lengd og 1,64 m breidd. Gluggar á stofu voru tveir; einn á miðjum gafli, annar á efri hlið. Stofan er í norðurenda hússins. Einn gluggi er á eldhúsi, sjávarmegin en á gangi er enginn gluggi. Dyr eru úr gangi í stofu og eldhús svo og útidyr.

Á loftinu yfir er 60 cm port og er rishæð í miðju 1,95 m. Tvö rúm voru höfð undir hliðinni sjávarmegin en eitt undir þeirri hliðinni sem veit til fjallsins. Hleri var á lofti og þar stigi niður. Efni innan: allt svipað, klætt með 3/4 tommu borðum 6 til 9 tommu breiðum og voru þau nótuð. Bitar undir lofti 3x4 tommu tré, en misjöfn breidd á milli þeirra. Á neðri hæð er klæðningur lóðréttur en portið uppi klætt lárétt. Hitunartæki voru kamína niðri en smá ofn uppi. Gluggar flestir fjögurra rúðu, stærð 70x70 cm.

Skráð hefur Þórður Maríasson, Rómarstíg 2, Súgandafirði”.

Áðurnefndur Friðbert Guðmundsson var kvæntur Elínu Þorbjarnardóttur, og áttu þau sex börn: Þorbjörgu Guðrúnu, Gissur Þorvaldsson, Guðmundu Ingibjörgu, Ólaf, Friðbert og Guðmund Pál.

Dóttir Guðmundar og systir Friðberts var Arnfríður Guðmundsdóttir. Hún var gift Jóni Hálfdani Guðmundssyni, ættuðum frá Gelti. Þau eignuðust níu börn, sem upp komust: þau hétu: Guðmundur Bergur (drukknaði 21 árs), Sigurborg Sumarlína, Ásgrímur Ingibjartur, Ólafur, Elín Lára, Markúsína Sigríður, Jón Hinrik, Ingólfur og Friðrik Þórarinn.

Hjónin Guðmundur Guðmundsson og Ingibjörg Friðbertsdóttir fluttu með sér kindur og eru þau því fyrstu kvikfjáreigendur kauptúnsins. Guðmundur byggði síðan hús yfir skeppnur sínar og hey. Ennfremur fékk hann lóð fyrir timburhjall og pláss fyrir matjurtargarð. Guðmundi var umhugað að efla menntun í hinum litla byggðarkjarna sem var að myndast á Suðureyrarmölum, og var hann meðal annars einn af stofnendum Lestrarfélags Suðureyrarhrepps, 18. nóvember 1900. Guðmundur sat einnig í hreppsnefnd Suðureyrarhrepps.

Þriðju hjónin sem settust að á Suðureyrarmölum hétu Jóhannes Albertsson og Sigríður Jónsdóttir en þau færðu sig hingað frá Norðureyri árið 1898 og komu sér fyrir í koti sem þau byggðu upp úr gamalli verbúð er Guðmundur Sigurðsson á Laugum hafði umráð yfir. Jóhannes var bróðir Kristjáns Albertssonar á Suðureyri og hafði verið bóndi á Norðureyri frá 1886. Húsið sem hann reisti árið 1898 tók seinna ýmsum breytingum og var um skeið kallað “Græni bærinn”, enda var það með torfþaki.

Þegar nítjándu öldinni lauk var kominn hér örlítill vísir að þorpi en þá voru íbúðarhúsin á Suðureyrarmölum þrjú. Babýlon var þá orðin verbúð á ný en á lóð sem seinna varð númer 36 við Aðalgötu var komið hús sem Jens Arnbjörnsson smiður hafði reist og í það flutist hann með sínu fólki frá Þverá í Staðardal í desembermánuði árið 1900.

Vorið 1891 setti Ásgeirsverslun á Ísafirði á stofn örlítið verslunarútibú á Suðureyrarmölum en fram að þeim tíma höfðu Súgfirðingar orðið að sækja alla verslun til Flateyrar eða Ísafjarðar. Fólkinu fjölgaði þó hægt fyrstu árin en þegar vélbátaútgerðin hófst urðu aldahvörf. Fyrsti vélbáturinn –Svanur- kom snemma í apríl árið 1906. Við lok ársins 1905 töldust þorpsbúar á Suðureyrarmölum vera 51. Tíu árum síðar voru þeir ornir 337 og 361 væri heimafólk á gömlu bændabýlunum á Suðureyri talið með.

Ekki er ætlunin hér að rekja frekar sögu þorpsmyndunar á Suðureyrarmölum, en áhugafólki bent á ýmis rit þar sem fjallað er um þessa mikilvægu fólksflutninga Íslendinga “frá móum á mölina”. Sérstaklega skal bent á hið merka rit Kjartans Ólafssonar frá Laugum í Súgandafirði: “Firðir og fólk 900-1900, Vestur-Ísafjarðarsýsla”.

Tekið saman af Ásmundi Ólafssyni í september 2025.

← Allar sögur