Fólkið · Fjörðurinn · Framtíðin
Skrá netfangGerast félagiSkrá inn

Súgandi / Sögur úr Súgandafirði

SÚGANDI · SUÐUREYRI

Sögur úr Súgandafirði

Frásagnir, minningar og sögur úr firðinum.

SÖGUR & MINNINGAR

KINNIN TROÐIN ÁRIÐ 1964

Ég eignaðist margar góðar vinkonur í Ljósmæðraskólanum. Ein þeirra var Svanbjört
Þorleifsdóttir, en að námi loknu árið 1962 hóf hún störf á Flateyri, næsta þorpi fyrir
sunnan Suðureyri, þar sem ég hóf mín ljósmóðurstörf um sama leyti.
Á þessum árum voru störf ljósmæðra, víða í hinum dreifðu byggðum, ólík því sem nú
tíðkast. Þær sáu um sjúkraskýlin, sem oftar en ekki voru einnig hjúkrunarheimili, að
vísu fyrir fáa sjúklinga. Þá þurftu þær oft að leysa læknana af, reka apótekin auk fleiri
þátta. Einnig sáu þær um mörg störf sem dýralæknar annast að jafnaði í dag. Alls
konar ráðgjafastörf komu upp reglulega, störf sem félagsráðgjafar sinna í dag.
Einn daginn á fyrri hluta maímánaðar 1964 hringir Svanbjört ljósmóðir í mig frá
Flateyri, en hún átti von á sér um þetta leyti. Eiginmaður Svanbjartar var Hrafnkell
Gunnarsson frá Flateyri. Þar sem jarðgöngin voru ekki komin þegar þetta var, fór ég
með bíl frá Suðureyri og að bænum Botni í Súgandafirði, en þaðan þurfti ég að
ganga yfir snjóbreiðurnar sem huldu fjallveginn milli Súgandafjarðar og
Önundarfjarðar, sem var algjörlega ófær bílum um þetta leyti.
Breiðadalsheiðin er 610 metra há og þar var lengi einn hæsti fjallvegur landsins. Þar
hafa oft orðið mörg slys vegna snjóflóða. Gamli akvegurinn um heiðarnar var
opnaður árið 1936 og þótti mikil samgöngubót. Veggöngin sem hafa nú verið lögð
undir Breiðadals- og Botnsheiði hafa gjörbreytt samgöngum á þessa erfiða svæði, en
þau voru vígð árið 1996. Þau skiptast undir Botnsheiði og liggur annar armurinn
þaðan til Súgandafjarðar en hinn til Önundarfjarðar. Vegalengdin milli Ísafjarðar og
Súgandafjarðar um göngin er 5 km en 7 km til Önundarfjarðar.
Þegar ég hafði gengið upp á Heiðina var ég komin í „Kinnina“ sem er nafnið á
brattasta, hættulegasta og erfiðasta vegakaflanum á fjallveginum. Nafnið „Kinnin“ er
ekki mjög þekkt í dag, en þetta var erfiðasti vegakaflinn á hinum gamla fjallvegi yfir
heiðarnar. Hann lá í miklum og háskalegum halla þar sem vegurinn einkenndist af
þröngum og snjóþungum brekkum. Svæði þetta var alræmt fyrir snjóflóð, grjóthrun
og klaka á vetrum og fram á vor, og urðu þar mörg óhöpp og slys áður fyrr.
Oft var ekki farið inn á Kinnina, heldur stefnt beint upp í skarðið í kröppum
sneiðingum í miklum bratta. Þarna þótti ekki fært upp ríðandi á hesti, heldur þurfti að
teyma til að komast upp í skarðið sunnanfrá. Gangandi fólk fór stundum beint upp á
Hornið, hægra megin við Kinnina, til að sleppa við þær hættur sem fylgdu henni. Þá
þurfti að fara að öllu með gát og gæta þess að fara framhjá 18 vörðum uppi á fjallinu
til að forðast hengiflugið upp af Kinninni. Væri þessi leið valin var í raun gengið niður
í Breiðadalsskarð á norðurleiðinni, en ekki upp í það. Þetta var kallað að „fara Horn“.
Snjór getur setið lengi í Kinninni og mörg ár eða jafnvel áratugir hafa stundum liðið
án þess að snjórinn taki upp fyrir haustið. Og af gögnum má ráða að þarna geti
jafnvel verið snjóflóðahætta frá því í september og fram í júní.

Áfram var haldið en hjarn var á jörð svo gangan reyndist nokkuð greið. Síðan var
gengið niður í móti Önundarfjarðarmegin. Hjarnið gerði mér einnig kleift að renna
mér niður Skógarbrekkurnar til að flýta för minni.
Við þjóðveginn beið mín bifreið og var í flýti ekið niður til Flateyrar, þar sem Svanbjört
vinkona mín beið. Í stuttu máli, fæðingin gekk vel og lítil stúlka kom í heiminn, falleg
og heibrigð.
Fært í letur í desember 2016. Jónína Ingólfsdóttir, fyrrverandi ljósmóðir. Einnig er
stuðst við ritaðar heimildir.

← Allar sögur