Súgandi / Sögur úr Súgandafirði
SÚGANDI · SUÐUREYRI
Sögur úr Súgandafirði
Frásagnir, minningar og sögur úr firðinum.
SÖGUR & MINNINGAR
Eplaferðin
Í tilefni aðventu ætla ég að stikla á stóru í frásögn minni um Eplaferðina sem margir þekkja.
Það var á aðventunni 1948 að fjórir Súgfirðingar héldu úr höfn á Suðureyri um kl. 13:30 ,
daginn fyrir Þorláksmessu á vélbátnum Örninni, um 19 tonna trébátur.
Þeir voru:
Gísli Guðmundsson, skipstjóri – 47 ára
Egill Kristjánsson, vélamaður – 28 ára
Gísli Páll Gíslason – háseti - sonur Gísla Skipstjóra – 16 ára
Marteinn Friðbertsson – háseti – 16 ára.
Leiðin lá til Reykjavíkur að sækja epli fyrir jólin. Á þessum árum voru epli eitthvað sem
margir upplifðu sem ómissandi hluta aðventunnar. Lykt af rauðum eplum var ígildi þess að
aðventan væri komin og jól handan við hornið.
Á þessum tíma voru tvær verslanir á Suðureyri, Kaupfélagið og verslun Páls Friðbertssonar
sem hann stofnaði þegar hann var 24 ára árið 1940.
Þannig var að Kaupfélagið hafði fengið epli send að sunnan nokkru fyrr, en Páll Friðbertsson
hafði ekki náð að fá epla sendingu fyrir sína verslun. Á þessum árum skiptist fólk í hópa eftir
því í hvorri versluninni það verslaði. Annað hvort var verslað í Kaupfélaginu eða í verslun
Páls.
Gísli skipstjóri var giftur Þorbjörgu, systir Páls og hafði hjálpað Páli með eitt og annað í
gegnum árin.
Aðdragandi að epla ferðinni var ekki langur, Gísli segir svo frá að daginn sem lagt var úr höfn
– hafði Páll stungið uppá því við sig hvort hann gæti skotist til Reykjavíkur og sótt epli fyrir
sig.
Örnin kom til Reykjavíkur um kl: 13:00 á Þorláksmessu.
Kl: 15:00 kom veðurspáin fyrir næsta sólarhring – suðvestan hvassviðri á Faxaflóa og
sennilega norð-austan fárviðri út af Vestfjörðum daginn eftir.
Fyrir heimferð kom einn farþegi um borð, farmur af eplum og appelsínum fyrir Kaupfélagið á
Flateyri, svo lestin var full.
Þeir félagar lögðu úr höfn í Reykjavík uppúr kl: 16:00 sama dag, þvert á ráðleggingar.
Lýsingar Gísla skipstjóra og afa (Egils Kristjánssonar) af ferðinni eru magnaðar – þeir misstu
loggið þegar þeir sigldu í Bugtina en komu tækinu aftur í virkni út af Snæfellsnesi. Blautir,
kaldir og vansvefta börðust þeir við brimbrotin. Út af Patreksfjarðarflóanum hjó Örnin svo
fast í ölduna að kompásinn snérist við og sat öfugur í þaki hússins sem hann var í. Þarna voru
þeir búnir að missa talstöðina, farin í sundur, þoldi ekki barninginn.
Komnir fyrir Barðann, dró aðeins úr hryðjunum svo sást til lands en það versta beið þeirra.
Sigling inn Önundarfjörð var erfið – sortabylur og fjörðurinn fullur af togurum sem lágu þar í
vari. Þeir máttu hafa sig alla við að beygja Örninni frá hættunni þegar ljós þeirra komu allt í
einu út úr hríðar sortanum.
Fyrr um daginn hafði Páll Friðbertsson sett sig í samband við Ríkisútvarpið, honum stóð ekki
á sama um veðrið. Setti tilkynningu í lestur í útvarpinu, þess efnis að báturinn Örnin væri á
leið frá Reykjavík til Vestfjarða og voru skip beðin um að veita bátnum aðstoð og einnig
tilkynna verði þau hans vör.
Á Flateyri er tekið á móti þeim félögum með orðunum „að lengra færu þeir ekki“.
Gísli sagðist hafa lofað að koma með epli heim en bað viðkomandi um að hringja norður og
tilkynna um ferðir þeirra. Það gekk ekki eftir, því síminn var bilaður.
Þegar þeir lögðu af stað frá Flateyri var komin mið aftan á aðfangadag, orðið heilagt fyrir um
klukkustund og í hönd fór jólanóttin.
Þeir settu loggið upp við Flateyraroddann og stefnan tekin út fjörð. Ofsarok og bylur fylgdi
þeim út fjörð og fyrir Sauðanesið, á suður falli fóru þeir fyrir nesið, eftir logginu og klukkunni.
Næst var stefnan tekin á Galtartangana og þegar Gísli fann að það var farið að dúra í
kviðunum vissi hann að þeir væru komnir undir þá og setti stefnuna inn Súgandafjörð. Með
slökkt ljós sigla þeir inn fjörð til að fá betri sýn í hríðinni og myrkrinu. Örninni var lagt að
Ísversbryggju, rétt fyrir miðnætti á aðfangadagskvöld.
Þeir félagar voru sammála um að einhver æðri hafi hjálpað í ferðinni og sagði afi að hann og
Gísli hefðu sammælst um að fara til messu á jóladag.
Þó aðdragandi að ferðinni væri stuttur, held ég að skipsfélagarnir hafi verið búnir að
undirbúa sig í huganum að svara kallinu „hvort þeir væru til í að skjótast til Reykjavíkur á
trillu um há vetur til að sækja nokkur epli“ játandi. Afi minn (Egill Kristjánsson) sagði að hann
hefði ekki getað hugsað þá hugsun til enda að blessuð börnin sem voru frá heimilum sem
ekki versluðu í Kaupfélaginu fengju ekki jóla epli og upplifa ekki þessa sönnu tilfinningu.
Þessa fallegu sönnu jóla tilfinningu sem við mörg tengjum sterkt við úr æsku, en slungið að
færa í orð.
Þessi aðventu saga er einstök fyrir margra hluta sakir – kærleikurinn – samkenndin - fórnin.
Það er ómetanlegt fyrir hvaða samfélag sem er að eiga svona fallega sögu.
Guð blessi minningu þeirra sem fjallað var um.
Að messu lokinni er kirkjugestum boðið að þiggja veitingar á Hjallavegi 3, húsi afa míns og
ömmu - Egils Kristjánssonar og Guðrúnar Guðjónsdóttur.
Gleðilega hátíð.
