
21. október 2026
Okkar kona Ingrid Kuhlman með tvo fundi á Ísafirði
Dánaraðstoð til umræðu á tveimur fundum á Ísafirði
Miðvikudaginn 28. október verða haldnir tveir opnir kynningarfundir um dánaraðstoð á Ísafirði undir yfirskriftinni Dánaraðstoð: Að fá að ráða eigin lífslokum. Fyrri fundurinn verður kl. 16 í Naust, sal eldri borgara á Hlíf, og sá síðari kl. 20 í Bryggjusal Edinborgarhússins.
Á fundunum munu Ingrid Kuhlman og Bjarni Jónsson, stjórnarmenn í Lífsvirðingu, fjalla um dánaraðstoð frá ýmsum hliðum. Meðal annars verður farið yfir hvað felst í hugtakinu dánaraðstoð, hvernig hún er frábrugðin líknarmeðferð og öðrum ákvörðunum við lífslok, helstu sjónarmið með og á móti dánaraðstoð og reynslu landa þar sem hún er heimil. Einnig verður fjallað um viðhorf Íslendinga til dánaraðstoðar og stöðu mála hér á landi.
Lífsvirðing var stofnuð árið 2017 og hefur það að markmiði að stuðla að opinni og málefnalegri umræðu og fræðslu um dánaraðstoð. Félagið vinnur jafnframt að því að sett verði löggjöf sem heimilar dánaraðstoð við vel skilgreindar aðstæður og að uppfylltum ströngum skilyrðum.
Góður tími verður gefinn fyrir spurningar og umræður að loknum fyrirlestrunum.
Gylfi Ólafsson verður fundarstjóri á kvöldfundinum.
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

