Súgandi

Súgfirðingafélagið stofnað 29 nóvember 1950 stofnfélagar voru þá 115 talsins.
Fyrsti formaður félagsins var Guðmundur Jóhannesson búsettur í Reykjavík.
Súgfirðingafélagið er félag sem tengir saman, fólk sem á rætur að rekja til Súgandafjarðar.
Tilgangur félagsins er fyrst og fremmst til að viðhalda kynnum og halda tryggð við ræturnar.
Styðja við menningu og sögu Súgandafjarðar til dæmis með mynda og minningarkvöldunum.
Félagsmenn eru í dag 360 talsins og hefur þeim farið mikið fjölgandi undanfarin ár.

Stjórn félagisns kosin febrúar 2026:
Áslaug Ólafsdóttir Formaður
Guðný Erla Guðnadóttir fjármálastjóri
Guðrún Sif Hannesardóttir meðstjórnandi
Berglind Torfadóttir meðstjórnandi
Ingólfur Geir Gissurarson meðstjórnandi
Elín Kristrún Halldórsdóttir meðstjórnandi
Margrét Alda Sigurvinsdóttir varamaður í stjórn

Ritstjóri og hönnuður blaðsins Súganda er Vildís Inga Salbergsdóttir
Í ritnefnd er Malin Brand og Áslaug Ólafsdóttir
Blöðin eru gefin út tvisvar á ári sumar og jól.
Árgjaldið í félagið er 4400 kr og 3000 kr fyrir 67 ára og eldri.

Lög Súgfirðingafélagsins

  1. gr. Félagið heitir Súgfirðingafélagið. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
  2. gr. Tilgangur félagsins er: A) að efla og viðhalda kynningu Súgfirðinga. B) að efla og viðhalda sambandi við heimahéraðið.
  3. gr. Félagsmenn geta hverjir orðið, sem eru fæddir eða búið hafa í Suðureyrarhreppi, niðjar þeirra og makar.
  4. gr. Stjórn félagsins skal kosin á alaðfundi ár hvert. Skipa hana 7 menn, formaður og sex meðstjórnendur. Ennfremur skulu kosnir tveir endurskoðendur. Formaður skal kosinn fyrst og sér í lagi. Meðstjórnendur skulu kosnir í einu lagi. Aldrei skulu fleiri en þrír stjórnarmenn ganga úr stjórn á hverjum aðalfundi. Kosning skal vera skrifleg sé þess óskað. Kosningu hljóta þeir sem fá flest atkvæði, en séu atkvæði jöfn ræður hlutkesti. Stjórnin skiptir með sér verkum.
  5. gr. Formaður boðar fundi bréflega, með minnst 7 daga fyrirvara. Aðalfund skal halda í febrúar ár hvert og telst löglegur sé löglega til hans boðað. Skulu þar lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins.
  6. gr. Skylt er að halda fundargerðarbók yfir gerðir félagsins, svo og félagaskrá. Gjaldkeri innheimtir félasgjöld og greiðir reikninga félagsins eftir ávísun formanns, varðveitir og færir nauðsynlegustu bækur viðvíkjandi reikninghaldi félagsins. Ritari heldur gjörðarbók og varðveitir hana.
  7. gr. Árgjald félagsmanna skal ákveðast á aðalfundi ár hvert og fellur þá í gjalddaga.
  8. gr. Hætti félagið störfum og leggist niður, skal sjóðum þess og andvirði annarra eigna varið til skógræktar í Súgandafirði.
  9. gr. Lögum þessum má aðeins breyta á lögmætum aðalfundi og þarf til þess 3/4 greiddra atkvæða. 

Formenn félagsins

Á stofnfundi félagsins þann 29. nóvember 1950 voru lög félagsins samþykkt og árgjaldið var 20 krónur. 

Fyrsti  formaður félagsins var Guðmundur Jóhannesson.

  1. Guðmundur Jóhannesson 1950-1953
  2. Þorlákur Jónsson 1953-1955
  3. Guðmundur Hansson 1955-1957
  4. Árni Örnólfsson 1957-1959
  5. Ólafur Oddsson 1959-1961
  6. Benedikt Valdimarsson 1961-1964
  7. Þorlákur Jónsson 1964-1966
  8. Örnólfur Örnólfsson 1966-1968
  9. Leifur Sigurðsson 1968-1970
  10.  Jóhannes Jónsson 1970-1972
  11. Guðmundur H. Sigmundsson 1972-1975
  12. Sigrún Sturludóttir 1975-1977
  13. Viggó Karvels Guðmundsson 1977-1979
  14. Ómar Þórðarson 1979-1981
  15. Auður Þórhallsdóttir 1981-1983
  16. Páll Bjarnason 1983-1985
  17. Vilhelmína Salbergsdóttir 1985-1987
  18. Björn Guðbjörnsson 1987-1990
  19. Lovísa Kristjánsdóttir 1990-1992
  20. Sólveig Leifsdóttir 1992-1995
  21. Kristján A. Óskarsson 1995-1996
  22. Ævar Einarsson 1996-1997
  23. Anna Bjarnadóttir 1997-1999
  24. Sólveig Leifsdóttir 1999-2001
  25. Björn Guðbjörnsson 2001-2007
  26. Sigurþór Yngvi Ómarsson 2007-2010
  27. Atli Ómarsson 2010-2011
  28. Björn Guðbjörnsson 2011-2012
  29. Sóley Halla Þórhallsdóttir 2012-2013
  30. Eyþór Eðvarsson 2013-2016
  31. Elsa Eðvarsdóttir 2016-2019
  32. Erna Guðmundsdóttir 2019-2021
  33. Elsa Eðvarðsdóttir 2021-2023
  34. Áslaug Ólafsdóttir 2023-

Heiðursfélagar :

Þorlákur Jónsson 

Jón Steinþórsson 

Ragnhildur Þorvarðardóttir

Sigrún Sturludóttir á 60 ára afmæli félagsins árið 2010

Kristín Gissurardóttir  árið 2023

Björn Guðbjörnsson árið 2025

Reglugerð um heiðursfélaga Súgfirðingafélagsins í Reykjavík

  1. Heiðursfélagi skal valinn af fimm manna nefnd skipaðri af stjórn félagsins og skal formaður leiða nefndina.
  2. Heiðursfélagi skal sæmdur gullmerki sambandsins og fá innrammað heiðursskjal til staðfestingar útnefningu sinni.
  3. Heiðursfélagi skal vera gjaldfrír og fá tvo frímiða á allar skemmtanir félagsins.
  4. Gullmerkið er eign Súgfirðingafélagsins og skal skilað inn við andlát.
  5. Reglugerð þessari verður ekki breytt nema á aðalfundi félagsins.

HEIÐURSMERKI :
Elísabet Þórðardóttir 50 ára afmæli félagsins árið 2000
Gróa Guðnadóttir Guðbjörn Björnsson María Guðnadóttir Óskar Kristjánsson Páll Bjarnason Samúel Guðnason Sigrún Sturludóttir Þorvarður Örnólfsson Auður Þórhallsdóttir árið 2003
Guðmundur H Sigmundsson Ómar Þórðarson Jóhannes Kr. Jónsson Sólveig Leifsdóttir Kristín Gissurardóttir árið 2005
Þorbjörn Gissurarson Eva Sturludóttir árið 2006
Helga Stefánsdóttir Anna Bjarnadóttir árið 2012
Björn Guðbjörnsson árið 2013
Ásta Þórarinsdóttir árið 2014
Guðrún Ásta Guðjónsdóttir Sigurþór Ómarsson
Sóley Halla Þórhallsdóttir árið 2015
Friðbert Pálsson árið 2016
Kristján Pálsson árið 2017
Eyþór Eðvarðsson árið 2018
Ingrid Kuhlman árið 2019
Björk Birkisdóttir árið 2022
Elsa Eðvarðsdóttir árið 2023
Ólöf Birna Jenssen Ólafsdóttir árið 2023
Gunnar Pálsson árið 2025
Þórður Guðbjörnsson árið 2025
Adda Bjarnadóttir árið 2025
Guðrún Margrét Karlsdóttir árið 2026
Sigrún Edda Eðvarðsdóttir árið 2026

Reglugerð um heiðursmerki Súgfirðingafélagsins í Reykjavík.
1. Heiðursmerki Súgfirðingafélagsins í Reykjavík er blátt hringlaga merki félagsins, samsvarandi fána þess.
2. Merkið skal veitt fyrir framúrskarandi störf í þágu félagsins og átthaganna.
3. Stjórn félagsins ákveður hverjum skuli veita merkið.
4. Heimilt er að veita einstaklingi utan félagsins merkið.
5. Reglugerð þessari verður ekki breytt nema á aðalfundi félagsins.