Nýjustu fréttir
Fundargerð Aðalfundar Súgfirðingafélagsins haldinn þann 11.mars 2012 s.l.
Aðalfundur Súgfirðingafélagsins í Reykjavík var haldinn á veitingahúsinu Catalínu, Kópavogi þann 11.mars og var vel mætt. Nokkur breyting er á stjórn félagsins og er hún skipuð eins og hér segir. Sóley Halla var kosin formaður og nýjir meðlimir í stjórn félagsins eru þau Eyþór Eðvarðsson, Friðbert Pálsson, Emma Ævarsdóttir og Álfheiður Einarsdóttir. Áfram í stjórn sitja Hallgerður Jóna Elvarsdóttir og Magnús Gísli Guðfinnsson. Úr stjórn gengu þau Björn Guðbjörnsson, Finney Rakel Árnadóttir, Unnur Sigríður Erlingsdóttir og Steingrímur Guðmundsson.
Fundargerð aðalfundarins verður sett inn á síðuna á næstu dögum.










